mánudagur, desember 26, 2005

 

Makkíntoss og MSN samræður

....Þegar að ég kom heim úr hraðbankanum þá varð ég að laumast inn. Ég komst inn í herbergið óséður og byrjaði strax að hugsa... Ég velti fyrir mér hvernig ég gæti reddað jólagjöfum bræðra minna með 2 þúsundköllum, allt var lokað á þessu tíma !
Skyndilega rifja ég upp skemmtilegan leik sem að ég og strákarnir fórum í fyrir svona mánuði. Sá leikur byggist á því að ég læt þá fá miða sem inniheldur einhverja rímu, tveggja línu rímu. Þeir eiga að finna vísbendingar útúr henni og finna næstu... Þangað til að þeir koma að lokablaðinu.........
Ég fer nú að pæla í að rétta þeim bara 1000kallinn þegar allir pakkar hafa verið teknir upp...
Ég teygji mig í 2 geisladiskahulstur og pakka þeim inn............... (2 Be Continued....)

*Hvað gerir Atli?*Hvað var í geilsadiskahulstrunum?*
Fylgist með næsta þætti af MAKKÍNTOSS !!!!! (trommuhljóð)

-MSN-

ég var að spjalla við Sigrúnu áðan og ákvað aðeins og rugla í henni :P

Atli R.: hvernig var svo 24.des hjá þér ?
Sigrún Bj.: bara mjög fínn, rólegur
Atli R.: ja....
Atli R.: jólatré og svona ?
Sigrún Bj.: já, allur pakkinn :D
Atli R.: allur pakkinn ? var sem sagt bara einn pakki undir jólatrénu ?
Sigrún Bj.: nei....
Atli R.: eða er ég að misskilja þetta á einhvern undraverðan hátt ?
Sigrún Bj.: já...þúst allur pakkinn bara allt heila krabið...fattaru
Atli R.: ég er að hræra í þér Sigrún !
Atli R.: LOL ég er ekki ALVEG svona tregur !

Já, mér fannst öll sagan sögð þegar að hún sagði: 'bara allt heila krabið'
Mér fannst þetta gaman og ja... hafði gaman af :D

-Atli R.-

sunnudagur, desember 25, 2005

 

FM 2006 :@

Seinustu 2 daga hef ég reynt að spila FM 2006 sem að ég dowloadaði, það virðist altaf eitthvað vanta uppá ! Nú er ég hins vegar að fara að gefast upp. Ég held ég kaupi mér leikinn bara, það er alltaf langeinfaldast ;) Þannig að ég er búinn að vera að pirrast svoldið á fjölskyldumeðlimum mínum :S:D En já, við erum búin að spila Trivial Pursuit svoldið mikið ! Það er skemmtilegt spil, það er þetta nýja sko :P

Eeeeeennnnnnnnn........


(Jólasagan Makkíntoss, Part 1)

Aðfangadagur var í gær og gekk hann vandræðalaust fyrir sig. Ég náttúrulega gleymdi alveg að kaupa gjafir handa fjölskyldunni minni þannig að ég þurfti að redda mér einhvernveginn svo ég fór útí hraðbanka og tók úr 2000kr.

Jáh, þá var jólagjöfunum til bræðranna reddað... nú þurfti ég bara að hugsa hernaðaráætlun mína til enda...............(2 be Continued...)

Lag Dagsins: Turn It Up með Chamillionaire

-Atli R.-

föstudagur, desember 23, 2005

 

Vandræði !

Ég er búinn að vera í vandræðum undanfarinn dag :D Já, ég er búinn að vera í svona 2 tíma að create-a blogg og svo þegar að ég ætla að publisha það þá kemur bara eitthvað..'cannot display site' eitthvað rug... en eins og glöggir bloggunnendur tóku sennilega eftir þá henti ég blogginu á mína gömlu heimasíðu www.blog.central.is/grinverjar sem ég og siggi stútuðum í denn :D

Núna er ég bara að láta reyna á hvort að ég nái að publisha þetta blogg ef blogg skyldi kalla ! Ég vill fá að sjá fleiri komment.. Mjög gott hjá þeim sem að commenta reglulega :D En ég ætla að reyna að þrusu hinu blogginu hérna inn...

Lag Dagsins: Check Up On It með Beyonce og Slim Thug

2 Lag Dagsins: Turn It Up með Chamillionaire

-Atli R.-

fimmtudagur, desember 22, 2005

 

Fyrirbæri ?

Sigurlín kom með þá uppástungu að ég myndi blogga um fyrirbærið sem ég sá í Bónus í gær...

EN.......... mér finnst það ekki við hæfi, vegna þess að kannski finnur hún þessa síðu(eins og hún er nú vinsæl, síðan sko) og þá lætur hún KGB (rússnensk leyniþjónusta) ráða mig af dögum ! Gæti verið.. eða þá að einhver vinakona hennar skoði þessa síðu og særist við það að lesa um þetta 'Fyrirbæri' og þá kannski lætur vinkona hennar hana vita og þá lætur hún KGB fara á eftir mér og gera kannski eitthvað annað við mig heldur en að ráða mig af dögunum... Selja mér smákökur eða eitthvað !! nei lol djók!

Ætla ekki að hafa þetta mikið lengra...

HEY ! jú.. bíðið þið aðeins við... hérna er lengsta og besta comment sem ég hef gert í gengum minnn bloggferil ! http://www.blog.central.is/tjodfelag?page=comments&id=1304197

Þetta er lengra heldur en bloggið! Og er ég mjög stoltur ungur drengur eins og stendur í auganblikinu !

Á eftir held ég sé málið að skella sér niður í X-ið og kíkja á þetta Kolaport ! Gæti verið nokkuð spennandi þar sem mamma henti tveim hlutum... Ég gæti ýmindað mér upplitið á henni ef ég kæmi með þá aftur... búinn að kaupa þá og fínerí ! Það yrði ein kolbrjáluð KerlinG ! ;D

-Atli R.-

miðvikudagur, desember 21, 2005

 

Grillz

Í gær fór ég útí fótbotla klukkan 1 og kom heim klukkan 2.45. Það var gaman
(ömurleg saga Atli) :D

Ég veit ekki af hverju ég er að blogga, hef ekkert að segja frá... nema það að lagið Grillz með Nelly ft. Paul Wall, Big Gipp & Ali er bara alger snilld enda er það ofarlega á USA listanum...
Ég var að koma úr sturtu og er að fara út sennilega á röltið og kannski tekur maður upp aðra stuttmynd með Sigga og fl. Ég fer samt klárlega útí Bónus að nærast... Er orðinn svangur...

Ég er búinn að komast að því að LeBron James er OF góður. Kobe skoraði í nótt 62 stig f. Lakers og hann spilaði einungis 3 leikhluta... Er það töff eða ?!!?

PIMPIN' ?



Lag Dagsins: Grillz með Nelly

Flottasti Textinn: No Diggity með Blackstreet ft. Dr. Dre

-Atli R.-

þriðjudagur, desember 20, 2005

 

Stuttmynd og Super Mario Bros 1,2 og 3....Samt ekki 2... Hann er BORING !

Já, núna seinustu daga erum við strákarnir búnir að vera að vinna í stuttmynd. Sem stendur er búið að klippa helminginn af henni og við nokkuð hressir. Við erum allir sem einn ánægðir með myndina...
Mynd þessi verður sýnd einhverntímann á milli jóla og nýárs, hlakka ég til þanns tíma.

Í gær var mikið um rósir þegar að við byrjuðum að klippa, klukkan held ég alveg rétt um 1 leytið. Ég sat bara í 'single' og chillaði á meðan strákarnir strituðu við að klippa, þeir höfðu klárlega gaman af því samt sem áður. Þess má geta að kameru fengum við hjá DíDí. Sem tók einnig upp.
Svo þegar að við vorum orðnir svangir þá skutumst við útí Bónus til að kaupa okkur í sveeeenginn. Komumst reyndar hægt yfir vegna þess að akkerið hann Hilmir er nýbúinn að snúa sig á ökkla og gat því lítið hlaupið, hoppað og húllúmhæað :D:)

Þegar á leið á nóttina fórum við útí Myndbandaleiguna Ásinn og leigðum myndina 'Skeleton Key'
Svo var það fótbolti um miðja nótt á gervi gras vellinum. Reyndar í hryssingslegri rigningu en það myndi ég segja vera aukaatriði, Kerlingarýmindin hann Jón gerði þessa ferð að fýluferð. Hann neitaði að koma í fótbolta og stóð þarna eins og blautur maður gerir í mikilli rigningu. En við héldum ótrauðir áfram í fóbó og bara skemmtum okkur konungslega ! Þegar blásið var til leiksloka þá fórum við niður í SiggaKjallara og horfðum á 'Skeleton Key' sem var þýtt sem Höfuðlykill.. Þetta er hryllingsmynd frá höfundum 'The Ring' ef ég man rétt... Mér fannst hún eiginlega ekkert hræðinleg sko... Það er erfitt samt sem áður að vera harður ! Það er kalt á toppnum skal ég segja ykkur ! :D :D ;)

Orð Mánaðarins: 'KLÁRLEGA'

SykurBarón Mánaðarins: A to the R, ArnóR !

Ómaður Mánaðarins: Jón Sindri Emilson Kvendal


-Atli R.-

laugardagur, desember 17, 2005

 

Chill ?

2 seinustu daga hef ég 'tjillað' á 'kantinum' með Sigga, Badda og Hilmi. Það er fínt sko... Er það ekki það sem maður gerir í jólafríinu sínu ? En vá ! Er þetta veður ekki mikið Diss ?!!? Viðbjóðslegt veður, slubb slabb og rigningartussa. Ég er sko þokkalega blautur og fötin lykta eins og slubb slabba sleginn jólasveinn. Ætla að kvarta ! Ég var einhvern veginn svona þegar að ég kom heim, rennandi blautur !



Já, ég er bara að segja að við strákarnir erum heitir f. að fara í paintball einhverntímann f. eða strax eftir jól :P Alltaf gaman að deila þessu með ykkur ;)
Þið eruð nefninlega svo æðisleg ;)

Þegar ég er búinn að éta þá er málið að fara að taka upp eitthvað með strákunum... kannski endar kvöldið bara með spólu :P
Það er líka mjög fínt sko...

En hey! Þegar ég fór úr X-inu eftir Idolið þá fór ég og Baddi í Sigga Kjallara og horfðum á myndina Mr. and Mrs. Smith með Agga, Hilmi og Sigga. Svo komu Íris, Hanna og Sigurlín. Þegar myndin var búin þá fór fólk að týnast út en við sem eftir voru héngum þarna til 3 um nótt! ýkt nett.... Ég eitthvað kom heim 3.30 fór inní ísskáp og fékk mér Pepsi !

Vá þetta var góð saga.... Vil ég bikar ?!!? Hvað er ég að hugsa.... En allavega... Haldið áfram að vera dugleg við að baka Smákökur, eða Small Cookies :D

-Atli R.-

This page is powered by Blogger. Isn't yours?